15.05.1950
Efri deild: 106. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (2350)

49. mál, húsaleiga

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti. Það liggur nú fyrir till. sama efnis í hv. Nd., sem hv. fjhn. þeirrar deildar stendur óskipt að. En þar sem sýnilegt er, að sú till. nær ekki fram að ganga á þessu þingi, hef ég ásamt hv. 7. landsk. borið fram þessa till., svo að hv. þm. geti sýnt vilja sinn í þessu efni. Ég segi já.