19.12.1949
Neðri deild: 17. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

54. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Eins er háttað með 6. og 7. mál á dagskránni (54. og 55. mál þingsins), sem er hvort tveggja um framlengingu gildandi laga, og hefur fjhn. afgr. bæði þessi mál í einu hljóði, enda eru þessi frv. óbreytt að efni frá því, sem verið hefur.