09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (2419)

103. mál, skógrækt

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég gerði grein fyrir þessari brtt. áðan, og er hún flutt til að fullnægja kröfu hv. þm. Barð. um yfirmat. Hún kemur í veg fyrir, að þetta fari undir dómstólana, og ættu allir að geta sætt sig við hana, en óeðlilegt er að hafa hvort tveggja, að yfirmat sé leyft og málið geti gengið til dómstólanna.