09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í B-deild Alþingistíðinda. (2422)

103. mál, skógrækt

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Ef hæstv. ráðh. er að beina geiri sínum að mér, þá vil ég taka það fram, að ég er ekki í stjórn Dómarafélags Íslands, og hefur hæstv. ráðh. oft verið beinskeyttari heldur en hann er í dag. Mér finnst hæpið að taka ekki fram, hve yfirmatsmennirnir skuli vera margir, því að þeir eru oft helmingi fleiri en undirmatsmennirnir, og finnst mér þetta vera fært á verri veg frá því, sem var.