15.05.1950
Efri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (2444)

170. mál, lántaka hjá efnahagssamvinnustofnuninni í Washington

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur beðið mig að segja nokkur orð við 1. umr. þessa máls. Eins og málið ber með sér, þá þarf það ekki frekari skýringa við. Það hefur áður verið minnzt á í greinargerð, til hvers þessi lántaka er ætluð og með hvaða kjörum. — Ef ekkert sérstakt kemur fram, sé ég ekki ástæðu til að ræða málið frekar á þessu stigi, en vil leyfa mér að leggja til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.