20.01.1950
Neðri deild: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (2459)
93. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum
Flm. (Bjarni Ásgeirsson):
Það eru engar nýjar upplýsingar fyrir mig, sem komu fram frá hæstv. fjmrh., því að ég er í verkfæranefnd og var líka um tíma í landbrn. og vissi, hvað fór þar á milli. Ég vil bæta því við, að verkfæranefnd átti upptökin að athugun á þessu máli. Okkur var ljóst, að óðum leið að því, að ekki yrði nægilegt fé fyrir hendi í framkvæmdasjóði til þess að veita styrk á þær vélar, sem þá var sýnt, að þyrfti til ræktunarsambandanna á næstunni. Þá var það, að verkfæranefnd sneri sér til ráðuneytisins og spurðist fyrir um það, hvort líkur væru til þess, að þessar 3 milljónir króna, sem lögin gera ráð fyrir, yrðu hækkaðar, svo að áfram yrði hægt að veita styrk til þessara véla. Þegar ráðuneytið svaraði aftur, þá óskaði það eftir því, að verkfæranefnd kæmi með yfirlit yfir það, sem hún teldi þurfa að bæta við þessar 3 milljónir til þess, að ræktunarsamböndin fengju nægilegan styrk. Um drátt á þessu skal ég ekki segja. Formaður verkfæranefndar er hinn ágæti búnaðarfrömuður Guðmundur Jónsson, skólastjóri á Hvanneyri, og veit ég, að hann hefur gert það, sem honum var unnt, til þess að hraða verkinu, en það var ýmislegt í sumar, sem tafði menn frá slíkri skýrslugerð. Leitað var til ræktunarsambandanna um að fá frá þeim skýrslur um það, sem þau töldu sig þurfa, og þær skýrslur þurfti að endurskoða, og dróst það nokkuð fram á haustið, en þá var gerð bráðabirgðaáætlun um fjárþörfina í þessu efni. Nú er hins vegar fullnaðarskýrsla um þetta í þann veginn að koma út, og var gengið frá henni fyrir nokkrum dögum. En óðar en það lá fyrir, hvaða upphæð þyrfti í sjóðinn, þá taldi ég mér bæði rétt og skylt að bera þetta frv. fram og taldi mig engan þurfa þar um leyfis að spyrja. Hins vegar er hægt að leggja fram skýrsluna um þessa fjárþörf, og mun þá koma í ljós, að ekki munar miklu á henni og þeirri bráðabirgðaáætlun, sem verkfæranefndin gerði síðastliðið haust.