28.04.1950
Efri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í C-deild Alþingistíðinda. (2575)
104. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. hefur flutt brtt., þar sem farið er fram á að rýmka ákvæði skattalaganna um frádrátt á tekjum, þegar konan vinnur utan heimilisins, vegna þess kostnaðar, sem verður meiri víð húsmæðrastörfin, er konan vinnur úti. Tel ég þetta fyllilega sanngjarnt, en finnst, að till. þessi gangi of skammt, því að í framkvæmdinni mundi ekki verða nein breyting á þessu, þótt þessi till. yrði að lögum. Ég held, að það sé eðlilegra að breyta þessu á þann veg sem segir í brtt. minni á þskj. 402. En þar er sagt, að þegar bæði hjónin stunda sjálfstæða atvinnu, telji þau fram hvort í sínu lagi, og síðan verði skattaálagningin skv. því.
Hv. alþingismönnum er þetta mál vel kunnugt. Frk. Katrín Thoroddsen flutti um þetta frv. 1946, og var það rætt hér. En þá var litið svo á, að ekki væri heppilegt að vera að breyta skattalögunum, þar sem fyrir dyrum stæði endurskoðun á þeim. Nú hefur þessi endurskoðun farið fram, en ríkisstjórnin virðist ekki ætla að breyta skattalögunum að heldur. Þess vegna tel ég ástæðu að taka þessa till. upp. — Ég held, að menn geti fallizt á það, að kona og karl, sem stunda sjálfstæða atvinnu, teljist sjálfstæðir skattþegnar. En hitt er ósanngjarnt, þegar hjónin stunda bæði sjálfstæða atvinnu, að slengja atvinnutekjum þeirra saman, og komast þau í hærri skattstiga, en ef þau hefðu verið ógift. Þetta hlýtur alltaf að verða mjög ósanngjarnt, þegar skattstiginn er mjög hár. Þar sem einungis er um launatekjur að ræða, verður skattaálagningin mjög tilfinnanleg. Í þessari till. er gert ráð fyrir, að hjón geti því aðeins talizt sjálfstæðir skattþegnar, að viðkomandi persónur vinni ekki við sama fyrirtækið. Með þessu er komið í veg fyrir, að atvinnurekendur geti með þessum hætti skipt niður tekjum sínum.
Ég tel ekki þörf að fjölyrða um þetta sérstaklega. Mönnum mun vera þetta vel kunnugt, og ekki vandkvæði að skilja, hvað hér er á ferðinni. Ég vænti því, að hv. þingmenn geti fallizt á þessa sanngjörnu till., fyrst frv. liggur hér fyrir um breyt. á skattalöggjöfinni. Þá vænti ég þess og, að till. þessari verði vel tekið í fjhn., þar sem hún á að fá frv. til meðferðar aftur, og geri ég mér vonir um, að hv. n. geti sérstaklega mælt með þessari brtt.