13.05.1950
Efri deild: 105. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (2593)

104. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. Úr því að þetta frv. var nú einu sinni komið fram og við það slík brtt. sem þessi, þá finnst mér nú erfitt að komast fram hjá henni og segja nei, vegna þess málefnið, sem hún flytur. En ég vil með hliðsjón af því, hvers konar flækjufrv. þetta er orðið, marka afstöðu mína til þess með því að skipta mér ekki af því, sérstaklega vegna þess að mér finnst það vera orðið meira glettur milli einstakra hv. þm. Þess vegna greiði ég ekki atkv. um þessa brtt. frekar en annað í sambandi við þetta frv.