05.01.1950
Neðri deild: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Forseti (FJ):

Þegar ég setti fund, hafði ég ekki dagskrá. Mér skauzt yfir, að afbrigða þurfti fyrir málinu, þar sem of skammt var liðið síðan því var útbýtt. Ég vil leyfa mér nú að leita afbrigða fyrir málinu og einnig fyrir þeim umr., sem á undan eru gengnar.