05.01.1950
Neðri deild: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (271)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að fara þess á leit við forseta, að hann léti athuga, hvort ekki væri leið til þess að viðkomandi ráðh. væri hér viðstaddur, þegar ég tala, þar sem ég þyrfti m.a. að bera fram við hann fyrirspurn.