03.03.1950
Efri deild: 68. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (2713)

37. mál, sveitarstjórar

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Mál þetta var undirbúið af fyrrv. ríkisstj. Efni þess er að heimila hreppum með fleiri en 500 íbúa að ráða fastan starfsmann, sveitarstjóra, og fela honum stjórn og framkvæmd hreppsmála. Ég hygg, að þetta sé óhjákvæmilegt.