04.05.1950
Neðri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (2919)

65. mál, jeppabifreiðar

Forseti (SB) :

Út af fyrirspurn hv. þm. Dal. vil ég taka það fram, að ég sá mér ekki fært að taka fleiri mál á dagskrá í dag, en nú eru á dagskránni. Hins vegar er þetta mál hv. þm. ekki nein hornreka og verður tekið á dagskrá svo fljótt sem auðið er, og ástæðan til þess, að það var ekki á dagskránni í dag, er einungis sú, að ákveðið var, að deildarfundir skyldu aðeins standa eina klst. í dag.