18.04.1950
Efri deild: 90. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2997)

85. mál, eyðing refa og minka

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs til að geta þess, að þar sem sá maður, sem kjörinn hafði verið frsm., var forfallaður, hv. 1. þm. N-M., en hann er nú aftur kominn til þings, þá er hann manna bezt til sálar og líkama til þess fallinn að verða frsm.