21.04.1950
Efri deild: 92. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í C-deild Alþingistíðinda. (3008)

85. mál, eyðing refa og minka

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Má ég upplýsa, að mér skildist, að það hefði verið lagt fyrir n. af ráðherra að afla gagna í málinu, og þau hef ég reynt að nálgast eftir ýmsum leiðum; en mörg eru ófengin. Og þegar málið liggur þannig fyrir, skilst mér, að n. verði að fá frest, unz gögnin eru fengin.