07.03.1950
Neðri deild: 61. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (3071)

122. mál, verkstjóranámskeið

Bjarni Ásgeirsson:

Þegar þetta mál kom fyrir síðast, óskaði ég eftir, að beðið væri með atkvgr. þar til n. hefði athugað það nánar. Ég skýrði form. n. frá þessu, en fundur hefur enn ekki verið haldinn. Það er leitt að leggja stein í götu frv., en ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að frv. yrði ekki tekið til 3. umr. fyrr en n. hefur haft tíma til að athuga það betur.