25.11.1949
Efri deild: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (3134)

8. mál, iðnaðarmálastjóri og framleiðsluráð

Flm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. orð hans. N. mun leita til hans, og þykir mér vænt um, að hann skuli vera fús til að gefa henni þær upplýsingar, er í hans valdi stendur, og jafnvel þótt hann hafi ekki aðstöðu til að gefa þær sem ráðherra, mun n. verða honum þakklát fyrir það.