31.01.1950
Efri deild: 45. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (3165)

45. mál, fiskimálasjóður

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ef á að taka upp þessa reglu, sem um hefur nú verið rætt og ég hef ekkert á móti, þá vildi ég, að um leið yrði þá tekin upp sú regla að láta menn ekki sitja hér í allt að fjórðung stundar, meðan verið er að smala mönnum til atkvgr., eins og komið hefur fyrir nýlega, eftir ósk hæstv. ríkisstj.