02.02.1950
Efri deild: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (3169)

45. mál, fiskimálasjóður

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef borið fram brtt. á þskj. 283, en hef ekki haft tækifæri til að ræða hana við sjútvn. Ég vil því mjög mælast til þess, að hæstv. forseti taki málið út af dagskrá í dag og fresti umr. Ég skal láta taka málið fyrir í sjútvn. strax á morgun, svo að ekki þurfi að tefja framgang þess, en mér þætti eðlilegt, að till. yrði rædd við n., áður en hún kemur til afgreiðslu.