17.02.1950
Efri deild: 57. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í C-deild Alþingistíðinda. (3185)

45. mál, fiskimálasjóður

Páll Zóphóníasson:

Ég vil benda hæstv. forseta á, að það mun vera prentvilla, þar sem vitnað er í 4.–5. gr. þessara laga, því að það mun eiga að vitna hér í lögin, sem breyta á. En í trausti þess, að þetta verði leiðrétt, segi ég já.