21.04.1950
Efri deild: 92. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í C-deild Alþingistíðinda. (3237)
60. mál, notendasímar í sveitum
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hjó eftir því við þessa umr., að fjmrh. óskaði eftir því að vera við umræður, áður en umr. væri lokið. Nú hefur hæstv. forseti farið þannig með það mál, að taka það á dagskrá án þess að fjmrh. gæti verið við eða hefði verið við. Það hefði ekki verið úr vegi að fá a. m. k. að vita, hvað fjmrh. meinti með því að biðja um frest. Hann hefur ekki rætt þetta mál við mig sem formann fjvn., og hefur þegar komið frá hæstv. ríkisstj. till. um að taka upp á fjárlög framlag til notendasíma í sveitum á öðrum grundvelli, ,en hér er, og vildi ég geta þess, áður en gengið er til atkvæða um þetta mál.