27.04.1950
Efri deild: 94. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í C-deild Alþingistíðinda. (3255)
60. mál, notendasímar í sveitum
Forseti (BSt) :
Út af því, sem hv. þm. Barð. (GJ) kvartaði um í upphafi ræðu sinnar, að umr. hefði verið lokið að honum fjarstöddum, en hann verið á mælendaskrá, þá vil ég taka það fram, að hann var ekki á mælendaskrá. Hitt kann að vera, að hann hafi beðið um orðið en það farið fram hjá mér, og ef svo er, bið ég hann afsökunar, en ég hef þá verið truflaður, því að ég er vanur að taka eftir því, þegar þm. biðja um orðið.