02.05.1950
Efri deild: 99. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (3269)

60. mál, notendasímar í sveitum

Eiríkur Einarsson:

Ég hef lýst yfir því áður við atkvgr. um þetta frv. að mér þykir það að ýmsu leyti öðruvísi, en æskilegt er, t. d. það að binda þessi fjárframlög svo langt fram í tímann, en hins vegar er þörfin á sveitasímum svo brýn og þetta mál svo mikill þáttur í því að stöðva flóttann úr sveitunum, að ég hef ekki skap í mér til þess að fella það og segi því já.,