10.01.1950
Neðri deild: 25. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í B-deild Alþingistíðinda. (327)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Forseti (SB):

Ég skal geta þess, að skrifstofan hefur gert ráðstafanir til þess, að malið geti verið tekið til umr. eins fljótt og unnt er, og fundur mun hefjast, er lokið er við að prenta frv. upp, og mun verða hægt að verða við ósk hæstv. ráðh.