14.03.1950
Efri deild: 72. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í C-deild Alþingistíðinda. (3310)

68. mál, almannatryggingar

Forseti (BSt):

Út af tilmælum hv. síðasta ræðumanns vil ég benda á, að frv. í heild er frá annarri n. en fjhn. og hefur ekki verið að neinu leyti til hennar vísað. Áður en ég ákveð að fresta umr., vil ég með tilliti til þessa að minnsta kosti heyra orð frá þeirri n., sem málið hefur til meðferðar, um þetta atriði.