19.12.1949
Sameinað þing: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í D-deild Alþingistíðinda. (3492)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Forseti (StgrSt) :

Ég get þess hér, út af ummælum hv. þm. Barð., að hugmyndin er að ljúka þessari umr. nú. Annars hef ég ekki hugsað mér að halda fundi áfram á morgun. Mér þykir mjög leitt, að hv. alþm. geti ekki fengið sér smáhressingu. Ég skal gjarnan veita 10 mínútna kaffihlé, sem ég tel nægilegt, til þess að hv. þm. geti fengið sér kaffisopa hérna niðri. — [Fundarhlé.]