20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (3508)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég tel rétt, að þeir, sem á eftirlaunum eru, fái uppbætur, en tel hins vegar ekki rétt að blanda því saman við uppbætur til opinberra starfsmanna, heldur taka það fyrir í sambandi við afgreiðslu fjárl., og mun þá fylgja því. Auk þess tel ég ekki viðeigandi af hæstv. forseta, hvernig hann hagar atkvgr. um þessa till. á þskj. 120. Ég greiði því ekki atkv.