30.11.1949
Sameinað þing: 6. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3521)

7. mál, hraðfrystihús og fiskiðjuver í Flatey

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Það eru mörg frystihús víða um land, sem ekki hafa fengið stofnlán undanfarið, og víða hinum mesta vanda bundið að ljúka húsunum, og önnur eru með lausaskuldir, sem gera þarf upp, ef þau eiga að hafa grundvöll til að starfa. Þetta stafar af lánsfjárskorti í stofnlánadeildinni. Ég vil því skora á hv. fjvn. að gera yfirlit yfir þetta, því að það verður að gera allt til að hjálpa þessum fyrirtækjum, og þingið verður að finna viðeigandi lausn á þessu máli.