14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (3544)

42. mál, farkennaralaun

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að minna á till. þá til þál., sem ég ásamt fleiri hv. þm. flutti um heimild fyrir ríkisstj. til þess að greiða farkennurum jöfn laun. Þessari till. var útbýtt um sama leyti og till. þeirri um uppbætur á laun opinberra starfsmanna, sem nú hefur verið rætt um, og var henni vísað til hv. fjvn. litlu síðar, og vil ég beina þeim tilmælum til hv. fjvn., að hún afgreiði þetta mál jafnsnemma hinu.