14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (3546)

42. mál, farkennaralaun

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég þakka háttvirtum formanni fjárveitinganefndar fyrirheit um að taka till. okkar til meðferðar á næsta fundi, en út af því, sem hv. þm. sagði, að till. færi fram á að breyta l., þá má náttúrlega ýmislegt um það segja, en ég lít á till. okkar sem algera hliðstæðu við till. um launauppbót opinberra starfsmanna, þannig að ef n. getur lagt til, að slík till. verði samþ., getur hún það eins um till. okkar. Þar er enginn munur á.