19.04.1950
Sameinað þing: 39. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í D-deild Alþingistíðinda. (3680)

130. mál, kristfjárjarðir o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka n. góðar undirtektir og skilning á þessu máli. Ég er sömu skoðunar og nm., að þessi athugun ætti ekki að þurfa að taka langan tíma. Það mun vera um að ræða 155 jarðir, og ættu upplýsingar um þær að fást fljótlega, ef fast er leitað eftir þeim. Ég vænti, að það verði ekki síðar en 1951. Ég vil svo endurtaka þakkir mínar til n. fyrir góða afgreiðslu.