09.12.1949
Neðri deild: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Fyrir alllöngu mun hafa verið skipuð nefnd til þess að endurskoða skattalögin. Mér er sagt, að nefnd þessi muni hafa skilað áliti fyrir alllöngu, líklega snemma á þessu ári, til þáverandi hæstv. ríkisstjórnar. Ég hef ekki orðið þess var, að þetta álit hafi komið fyrir almenningssjónir.

Nú vildi ég gjarnan, og ég get búizt við því, að það sé svo um fleiri, en mig hér á Alþ., að þeir vildu gjarnan mega kynnast þessu nál. Ég vil því spyrjast fyrir um það hjá hæstv. fjmrh., hvort hann vildi hlutast til um, að þingmenn fengju þetta nál. til athugunar hið fyrsta.