04.01.1950
Sameinað þing: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í D-deild Alþingistíðinda. (3741)

73. mál, tunnuverksmiðja á Akureyri

Skúli Guðmundsson:

Það er aðeins út af till. flm. um það, til hvaða n. þessi till. eigi að fara. Það er svo, eins og kunnugt er, að fjvn. athugar yfirleitt rekstur allra ríkisfyrirtækja í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna. Ég tel sjálfsagt eftir eðli málsins, að þessi till. fari til fjvn., en ekki allshn. Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hv. flm., hvort hann geti ekki á það fallizt.