06.12.1949
Sameinað þing: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í D-deild Alþingistíðinda. (3766)

39. mál, sérréttindi í áfengis- og tóbakskaupum

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Um efni þessa máls get ég látið nægja að vísa til grg., sem till. fylgir. Það mun þykja betur við eiga, að þingn. fjalli um málið, þó að hér sé í rauninni gamall kunningi á ferðinni, og vil ég því, ef hæstv. forseti telur það réttara, að málið fari til n., leggja til, að umr. verði nú frestað, en till. vísað til fjvn. Vænti ég þess, ef svo fer, að n. geti skilað áliti um málið hið fyrsta.