18.01.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (3822)

80. mál, síldveiðar og síldarleit

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki ræða efni till. hér, enda ekki ástæða til þess, þar sem henni verður sjálfsagt vísað til fjvn. samkvæmt tillögu flm. Skal ég lofa honum, að hún verði tekin fyrir á fundi fjvn. strax og mögulegt er, sem sennilega verður á morgun, og verður hún þá auðvitað send til stjórnar fiskimálasjóðs til umsagnar, og veltur þá á því, hvað svar berst fljótt þaðan, hvenær till. verður afgreidd frá fjvn.