23.02.1950
Sameinað þing: 27. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í D-deild Alþingistíðinda. (3871)
109. mál, Helicopterflugvél
dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég bar fram þá fyrirspurn fyrir nokkrum dögum, hvað liði afgreiðslu fjvn. á till. um kaup á helicopterflugvélinni, sem hér hefur verið til reynslu. Ég hef ekki enn séð neitt nál. og vil því mælast til, að n. afgreiði málið sem fyrst á einn eða annan hátt.