12.05.1950
Sameinað þing: 49. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í D-deild Alþingistíðinda. (3956)

150. mál, austurvegur

Gísli Jónsson:

Út af þessari fyrirspurn skal ég taka fram, að málið hefur verið tekið fyrir í fjvn., en n. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu þess, og vildi ég gjarnan ræða við hv. þm. um það, hvort hann teldi málinu betur borgið með því, að n. gæfi út tvö eða þrjú álit um það á þessu þingi, en að það verði betur undirbúið undir næsta þing. Vildi ég gjarnan ræða við hv. flm. um það.