11.01.1950
Sameinað þing: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í D-deild Alþingistíðinda. (3999)
78. mál, skipun læknishéraða
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Þegar þessi n. var skipuð, nefndu heilbr.- og félmn. Alþ. einn fulltrúa í hana. Lít ég á hann sem fulltrúa Alþ. Hann á að bræða saman ólík sjónarmið á Alþingi. Haraldur Guðmundsson flutti till. til að reyna með henni að ná samkomulagi um þau ólíku sjónarmið, er fram höfðu komið. Hef ég ætíð krafizt þess, að Gunnar Thoroddsen, sem fulltrúi Alþingis í nefndinni, gengist fyrir því, að komizt yrði að einhverri niðurstöðu. — Annars lágu skriflegar upplýsingar um kaup nefndarmanna fyrir frá Stjórnarráðinu hjá sparnaðarnefnd, sem ég átti sæti í, og þar var talið, að 7. þm. Reykv. (GTh) hefði fengið 2.000 kr. fyrir nefndarstörfin. Hvernig því nú er neitað, skil ég ekki, nema 7. þm. Reykv. hafi skilað því aftur, er honum var greitt og sparnaðarnefnd var sagt frá á sínum tíma.