10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (4087)

906. mál, byggingarkostnaður síldarverksmiðja

Stefán Jóh. Stefánsson:

Ég er annar af flm. þessarar fyrirspurnar. Út af því, sem hæstv. atvmrh. sagði síðast, vil ég taka það fram, að ég teldi æskilegt, ef hann vildi gefa þm. kost á því að sjá þessa endurskoðunarskýrslu, þegar hún kemur. Að öðru leyti skilst mér, þar sem hún hefur ekki borizt ríkisstj., a.ð hæstv. ráðh. geti ekki á þessu stigi gefið upplýsingar, en þess er að vænta, að þessar upplýsingar berist til þm., þegar þær eru komnar til ríkisstj.