10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í D-deild Alþingistíðinda. (4092)

907. mál, lán byggingarsjóðs af gengishagnaði

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér til svars þessari fyrirspurn að vísa til þess, sem ég tók fram nú áður í sambandi við fyrirspurn hv. þm. N-Þ. um það, hvað gengishagnaðurinn muni verða hár, og einnig um það, sem ég þá sagði um það, að ég geri ekki ráð fyrir, að neitt verði því til fyrirstöðu, að bankastofnanir fari bráðlega að afhenda það fé, sem fram á að leggja samkv. l.