16.05.1950
Sameinað þing: 50. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í D-deild Alþingistíðinda. (4115)

162. mál, Marshallaðstoð til vatnsorkuvirkjana

Gísli Jónsson:

Hæstv. ráðh. hefur nú minnzt á nokkrar stórvirkjanir, sem fyrirhugað er að ræða í hæstv. ríkisstj., en ég heyrði hann ekki minnast á Dynjanda eða Mjólkurár. Ég vildi gjarnan spyrja, hvort hann hefur hugsað sér að ganga alveg fram hjá þeirri virkjun fyrir Vestfirði. Mér er kunnugt um, að það hefur farið fram svo mikill undirbúningur í þeim málum, að þess er vænzt af viðkomandi aðilum, að þeir verði ekki látnir sitja á hakanum. Ég vildi gjarnan heyra um þetta frá hæstv. ráðherra.