13.01.1950
Efri deild: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (457)
51. mál, tollskrá o.fl.
Bernharð Stefánsson:
Þó að ég líti svo á, að stjórnin hafi haft vafasama heimild til að innheimta tollinn, það sem af er þessum mánuði, þá lít ég svo á hins vegar, að Alþ. geti með lögum kveðið svo á, að tollinn skuli innheimta frá þeim tíma, þ.e. áramótum, þótt ég sé ekki þar með að segja, að heppilegt sé að láta tollinn verka aftur fyrir sig. Ég segi já.