25.11.1949
Efri deild: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (462)
22. mál, gengisskráning o.fl.
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þann 18. sept. s.l. var tilkynnt í Bretlandi, að ríkisstjórnin þar í landi hefði ákveðið að lækka gengi sterlingspundsins gagnvart dollar mjög verulega. Nokkru síðar tilkynntu svo um 20 önnur ríki víðs vegar um heim, þar á meðal flest aðalviðskiptalönd okkar, að þau mundu á sama hátt fella gengi sinnar myntar gagnvart dollar, eða m.ö.o. láta sína mynt fylgja pundinu eftir. Eftir að málið hafði verið athugað í ríkisstj. og bönkunum, þótti sýnt, að ekki yrði hjá því komizt, að íslenzka krónan fylgdi pundinu, eins og hún hafði raunar áður gert, en í lögum var, að þegar pundið lækkaði niður fyrir visst hlutfall gagnvart dollar, þá skyldi krónan fylgja dollar, en ekki pundi. Þessu ákvæði var breytt með brbl. og ákveðið, að krónan skyldi fylgja pundinu, enda þótt það hefði lækkað niður fyrir þetta vissa hlutfall gagnvart dollar. Þótti ekki annað fært, því að ella hefði stöðvazt útflutningsverzlunin við öll helztu viðskiptalönd okkar. — Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.