17.01.1950
Efri deild: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

95. mál, dýrtíðarráðstafanir

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það væri æskilegt að fá þessar upplýsingar í sambandi við afgreiðslu þessa máls, en þess er ekki þörf á þessu stigi málsins, en væri t.d. nauðsynlegt í sambandi við afgreiðslu málsins í nefnd, og vil ég beina því til hv. fjhn., að hún afli þessara upplýsinga, svo að yfirlit fengist yfir þetta mál, sem orðið hefur þjóðinni bæði til armæðu og tjóns.