17.12.1949
Neðri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1547 í B-deild Alþingistíðinda. (58)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Steingrímur Steinþórsson:

Það eru aðeins örfá orð. Út af þeim umræðum, sem hér hafa farið fram viðvíkjandi því, hvenær 1. umr. fjárl. fari fram, vil ég geta þess, að samkvæmt samtali, sem ég átti við hæstv. fjmrh. fyrir stuttri stundu, hefur verið ákveðið, að þessi umr. fari fram á þriðjudaginn kemur. Vegna þess, að þetta kom til umræðu kann ég betur við að skýra hv. þm. og þd. frá því.