10.03.1950
Neðri deild: 63. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Það er um þingsköp, herra forseti, viðvíkjandi málinu, sem tekið er á dagskrá. Það liggur nú fyrir nál. frá hv. minni hl. fjhn. Hins vegar eru ekki komin álit frá hinum nm., meiri hl. n. Ég hefði þess vegna viljað fara fram á það við hæstv. forseta, að meðferð málsins yrði frestað, þar til nál. frá okkur liggur fyrir.