17.03.1950
Efri deild: 76. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (788)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Frsm. 2. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Því miður eru þær brtt., sem ég hef lagt fram við frv., ekki komnar enn þá, og er erfitt bæði fyrir mig að ræða þær og hv. d. að fylgjast með, meðan þær eru ókomnar. Mér er tjáð, að þær séu rétt að koma, og vildi ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann frestaði fundi þangað til brtt. eru komnar. [Fundarhlé.]