18.03.1950
Efri deild: 77. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (817)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Gísli Jónsson:

Fyrir þessari hv. d. liggur nú frv. um sams konar efni og er í brtt. þeirri, sem hér er um að ræða. Og ég sé ekki annað, en að hv. þm. geti komið að þessari breyt. þar, án þess að það sé gert út um það efni við atkvgr. þessa máls, sem hér liggur fyrir. Ég segi því nei.