18.03.1950
Efri deild: 78. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Út af ummælum hv. 6. landsk. vil ég aðeins taka þetta fram: Í orðum mínum áðan fólst ekki annað loforð, en að taka málið upp við Alþýðusamband Íslands og reyna að ná samkomulagi við stjórn þess og ná þannig árangri í málinu. Hv. flm. má ekki leggja þann skilning í orð mín, að því hafi verið lofað, sem felst í till. hans, heldur loforð um að taka málið upp og reyna að ná samkomulagi um það.