24.02.1950
Efri deild: 60. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í B-deild Alþingistíðinda. (855)

53. mál, eignakönnun

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég get eftir atvikum sætt mig við þær breyt., sem snerta 3. mgr. 17. gr. En hvað um undandrátt fyrir 1. jan. 1940, sem talað er um í 2. mgr. 17. gr.? Því hefur n. láðst að gera ráð fyrir. Það vantar aðra klásúlu á eftir 2. mgr. 17. gr., um eignaraukningu, sem hefur orðið til fyrir 1. jan. 1940. En þetta má laga milli 2. og 3. umr.