25.02.1950
Efri deild: 61. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

53. mál, eignakönnun

Forseti (BSt):

Ég skal geta þess, að þetta mál var tekið út af dagskrá í gær vegna þess, að hæstv. fjmrh. var ekki viðstaddur. En þar sem hann getur ekki heldur verið hér viðstaddur núna, þar sem hann þarf að taka þátt í umr. í hv. Nd., átti ég tal við hann í dag, og skýrði hann mér þá frá því, að hann hefði ekki neitt að athuga við afgreiðslu fjhn. á frv. og hefði ekki á móti því, að það væri afgreitt án nærveru sinnar.